Teymi Afstemmu ehf.

Afstemma ehf.

Teymið

Elín Björg Ásbjörnsdóttir, Bókari hjá Afstemmu ehf.

Elín Björg Ásbjörnsdóttir

Viðurkenndur bókari, stofnandi og eigandi

Elín er með áralanga reynslu í bókhaldi, launavinnslu og við að aðstoða einstaklinga og félög með skráningar hjá Skattinum. Hún er útskrifuð af skrifstofubraut MK með áherslu á bókhald og reikningsskil og einnig viðurkenndur bókari frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Elín starfaði í sex ár hjá KPMG á bókhalds- og endurskoðunarsviði.

elin@afstemma.is
María Kristín Rúnarsdóttir, Endurskoðandi hjá Afstemmu ehf.

María Kristín Rúnarsdóttir

Löggiltur endurskoðandi, stofnandi og eigandi

María er með áratuga reynslu í bókhaldi, ársreikningagerð, samstæðuuppgjörum og framtalsgerð. Hún er útskrifuð með MACC gráðu frá HR, er með próf í verðbréfaviðskiptum og löggildingu í endurskoðun. María starfaði í níu ár hjá Eimskip í öllum deildum fjármálasviðs, níu ár hjá þrotabúi Glitnis og fjögur ár hjá KPMG á endurskoðunarsviði.

maria@afstemma.is
Guðný Ragnhildur Davíðsdóttir, Bókari hjá Afstemmu ehf.

Guðný Ragnhildur Davíðsdóttir

Bókari

Guðný kom til liðs við okkur í maí 2024. Hún útskrifaðist úr bókhaldsnámi frá NTV í lok árs 2023 með stakri prýði.

Olga María Hermannsdóttir, Bókari hjá Afstemmu ehf.

Olga María Hermannsdóttir

Viðurkenndur bókari

Olga kom til liðs við okkur í apríl 2025. Hún útskrifaðist úr bókhaldsnámi frá NTV árið 2019 og sem viðurkenndur bókari frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu árið 2020. Olga vann á bókhalds og uppgjörssviði Reykjavíkurborgar í 6 ár.